Heiða daggarlingur og Sunna pepsisti

Cherish this

29.01.2007 02:22:05 / Heida

"They played the mash...The monster mash...It was a graveyard smash"

Jæja, hlutir eru að skýrast. I see the light.....in a good way...not the dying way. Þetta er allt að skýrast hjá mér, held ég. Ég er að fara sækja um vinnu í næstu viku. Síðan verð ég að byrja í jóga......verð!

Jæja, ég er að fullorðnast......okey, ég er að reyna það. Er einhver sem fullorðnast? Amma mín er ekki einu sinni fullorðin að mínu mati. Hún getur verið alveg eins mikill kjáni og ég. Hvað er skilgreining á fullorðnum einstaklingi? Sá sem hefur ábyrgð? 5 ára krakkar lenda í því að þurfa að hafa ábyrgð! Hvenær veit og hvernig veistu að þú ert orðin fullorðin?

Skrítinn hlutur gerðist fyrir mig í gær. Mér var boðið út að borða. Af drengi. Af kærasta. Ekki það að ég hafi verið með mörgum drengjum enn það hefur aldrei gerst áður. Mér fannst þetta ótrúlega skemmtilegt. Drengnum fannst þó einkennilegt að mínir fyrriverundur (er þetta orð?) höfðu ekki boðið mér út að borða. “Rosalega hafa þeir verið lélegir kærastar!” sagði hann orðbeint. Þeir voru það nú ekki....eða jú....fyrsti var reyndar en ekki hinn. Ég hef bara aldrei dottið það í hug að það ætti að vera eitthver skylda að bjóða út að borða...ekki að það sé nein skyldi....æ, þið vitið hvað ég meina! Ég er bara svo rosalega einföld þegar kemur að svona hlutum. Ég þarf ekkert grand. Það rómantískasta sem ég veit um er að labba meðfram fjörunni í frosti, snjór út um allt, stjörnubjartur himinn og Norðurljósin dansandi. Ég hef kaldhæðnislega upplifað þetta með bestu vinkonu minni en ekki kærasta. Það er engin furða að fólk heldur að við séum lesbískar. Fyrst að ég er að tala um rómantík þá eru rósir með það órómantískasta sem ég veit um. Þetta er bara mín skoðun. Ég vel frekar blóm úr garðinum eða asíska lilju heldur enn rós. Ef einhver vill móðga mig þá gefur hann mér rós. Rós er bara svo ófrumlegt að mínu mati.  Ég veit að margir túlka lilju sem blóm dauðans bla bla bla enn það er meiri karakter, það hefur sterkari lykt, meiri fegurð heldur enn nokkur rós sem ég veit um! Þannig já, rósir eru korný.

Það er alveg ótrúlegt hvað litlir hlutir hafa samt áhrif á mann. Ég ætla ekki að nefna neitt ákveðið enn allir sem hafa lent í því vita hvað ég er að tala um. Það ætti ekki að gera það enn af einhverjum einkennilegum ástæðum gera þessir litlu hlutir miklu meira enn maður ætlast til. Sumir geta farið í gegnum lífið án þess að þeir hafa áhrif en sumir ekki. Því miður þá er ég ein af þessum svömpum sem dregur allt inn. ALLT hefur áhrifa á mig, rather I like it or not! Sumir eru næmir og aðrir erum eins og múrsteinn sem ekkert kemst í gegnum. Þannig er það bara, ekkert hægt að breyta því.

Ég er búin að hoppa úr einu í annað hér hvað eftir annað. Ég er búin að vera svona seinustu daga. Ég vil kenna Grey’s Anatomy um. Ég er búin að horfa á seríu 2 á tveimur dögum, I feel proud....or maybe just crazy. Ég samt þoli ekki þegar að ég verð svona “hooked”.....ég kenni Tótu um. Hún á heiðurinn að þessu brjálæði. Það er ótrúlega einkennilegt hvað maður festist í svona drama þáttum. Reyndar er þetta kannski ekki týpískur drama þáttur, að mínu mati, en hann fær mig þó til að hugsa. Ég komst t.d. að því að mér langar alls ekki til að verða læknir. Ekki sjéns eftir að hafa horft á þetta. Síðan er fullt af öðrum heimskulegum hugsunum sem ég hef fengið sem er bein afleiðing af þessum þáttum.....kannski eru þessir þættir ekki eins góð áhrif eftir allt saman.

Í október verður mikil gleði fyrir mig. Þá verður Sunna mín komin heim, Heiðdís komin í sitt litla kot, Kata og Libba á landinu, Kolbrún að rústa háskólanum og SLAKK verður vonandi glætt líf í aftur. Því miður verður Tóta ekki á landinu. Ég á eftir að gráta hana ásamt Maríu og Heiðdísi enn við verðum vonandi duglegar að hittast. Fara í kaffi til hvor annarrar o.fl. Ég verð samt að segja það að ég er hræðileg í að halda vinasamböndum! Það verður að sparka duglega í rassinn á mér til að hafa samband. Ef ég er ekki í kringum þig daglega þá er frekar ólíklegt að ég hafi samband af fyrra bragði, sorglega enn sönn staðreynd. Því er ég hér með að biðja alla um að bögga mig eins mikið og þið getið! Ekki hætta! Hafið trú á mér! 

Jæja, móðir mín verður fimmtug á morgun, gellan verður fimmtug. Frekar skrítið. Það er líka engin að trúa því, enda er aldur bara hugtak. Ég segi meira frá þegar að afmælið er búið...enda held ég að þið gætuð ekki meðhöndlað fleiri upplýsingar.

Ég kveð eins og ávallt með skopi og lagi sem ómaði títt um helgina:

 

The Monster Mash
I was working in the lab late one night
When my eyes beheld an eerie sight
For my monster from his slab began to rise
And suddenly to my surprise

He did the mash
He did the monster mash
The monster mash
It was a graveyard smash
He did the mash
It caught on in a flash
He did the mash
He did the monster mash

From my laboratory in the castle east
To the master bedroom where the vampires feast
The ghouls all came from their humble abodes
To get a jolt from my electrodes

They did the mash
They did the monster mash
The monster mash
It was a graveyard smash
They did the mash
It caught on in a flash
They did the mash
They did the monster mash

The zombies were having fun
The party had just begun
The guests included Wolf Man
Dracula and his son

The scene was rockin', all were digging the sounds
Igor on chains, backed by his baying hounds
The coffin-bangers were about to arrive
With their vocal group, "The Crypt-Kicker Five"

They played the mash
They played the monster mash
The monster mash
It was a graveyard smash
They played the mash
It caught on in a flash
They played the mash
They played the monster mash

Out from his coffin, Drac's voice did ring
Seems he was troubled by just one thing
He opened the lid and shook his fist
And said, "Whatever happened to my Transylvania twist"

It's now the mash
It's now the monster mash
The monster mash
And it's a graveyard smash
It's now the mash
It's caught on in a flash
It's now the mash
It's now the monster mash

Now everything's cool, Drac's a part of the band
And my monster mash is the hit of the land
For you, the living, this mash was meant too
When you get to my door, tell them Boris sent you

Then you can mash
Then you can monster mash
The monster mash
And do my graveyard smash
Then you can mash
You'll catch on in a flash
Then you can mash
Then you can monster mash

 

 

Chao belles8)

 

P.S. Smá auka skop

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 15:38:53 / Sunna

Lifid og annad smalegt :)

Godan og blessadan daginn gott folk…..langt sidan eg hef heyrt i ykkur…..ha ha hmmmm….. Eg var ad lesa faersluna hja henni Heidu og eg verd ad segja ad eg hef oft stadid  i somu sporum. Hvad aetla eg ad verda, peningar, likamsraekt, borda hollt….svo margt mikilvaegt sem tharf ad akveda en eg hef ekki graena. Thad borgar sig ekki ad hafa of miklar ahyggjur oftast enda eg bara a thvi ad fa mer einn godan drykk hladinn koffini og annarri ohollustu og eitt gott sukkuladistykki og horfa a foodnetwork. Eg elska thessa sjovarpstod….thar er verid ad elda 24/7 einhverjar gourmet maltidir og folk er laust vid ahyggjur og vandamal lifsins.

 

 



Annars er ekki mikid ad fretta af mer…takk fyrir ad spyrja J Thad er skitakalt herna nuna og eg er buin ad vera drepast ur kvefi….lif mitt hekk a blathraedi i fyrrakvold en blessadir amerikanar eiga lyf vid hverju sem er og mer lidur bara saemilega nuna. Um helgina verd eg i skola fra 9-6 laugadag og sunnudag um cross-cultural communication eitthvad…vonandi verdur thad ekki of leidinlegt.

 

 



Eg veit ad thad er langt sidan en….. eg eyddi gamlarskvoldi a einhverjum klubbi sem er kalladur Avalon i New York. Kvoldid uppfyllti ekki alveg vaentingar minar en hey eg get allavegana sagt ad eg hafi eytt gamarskveldinu 2006-2007 I New York….yes ladies and gents eg er bara nokkud svol stulkukind fra Islandi.

 

 



Og a thessm notum kved eg ad sinni…..

 

 



Take care folks,

 

 



Sunna


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 06:44:02 / Heida

"Forgive me, Let live me Kiss my falling knee Forgive me, Let live me Bless my destiny"

Ég er hreinlega í erfiðleikum með þetta allt saman. Lífið er aldrei eins og þú reiknaðir út. Ég stend á mínum eigin fótum og á að tækla það. Það er hægara sagt en gert kæru vinir. Hvernig veit maður hvað maður á að gera? Hvernig veit maður að maður sé á réttri leið? Fær maður þetta allt á einu memmói frá gellunni þarna uppi? Ef svo er þá held ég að Lykla-Pétur hefur týnt því. Kannski rændi Júdas því. Ég veit allavega ekkert hvar ég er. Það er of mikið sem mig langar að gera. Valmöguleikarnir eru að kaffæra mig úr hræðslu. Hvað ef ég ákveð eitthvað og það gengur ekki? Ég veit að fyrir flesta þá er þetta ekkert mál en fyrir mig er það stórt mál. Ég lífi hvern dag í hræðslu. Ég þarf stöðugt að vinna upp kjark til að takast á við daginn. Ég veit ekki um neinn annan nálægt mér sem þarf þess. Af hverju get ég ekki verið svona fáránlega bjartsýn eins og Súperman? Það er maður sem fer í mínar fínustu taugar því að hann segir alltaf að allt muni lagast. Það er haugalygi! Það ríkir enn þá stríð í Darfúr, Íraksstríð er klúður ársins 2006 og fólk hefur meira áhyggjur af nýja bílnum sínum enn munaðarlausum börnum sem eru um allan heim. Ég er þá ánægð með að ég hef réttu sýn á heiminn. Ég er ekki blind. Heimurinn er ekki fulkominn. Ég er soldið þreytt á þessu öllu saman.....ég verð að viðurkenna að ég hafi ekki hugmynd um afhverju ég er að skrifa um þetta hér.....þurfti bara einhverja útrás.

Ég og Tóta vorum að skoða myndir frá því í vor. Það er fáránlegt hvað við erum búnar að breytast mikið. Þetta hefði alveg eins geta verið myndir úr Hagaskóla. Það er ótrúlega mikið búið að gerast á stuttum tíma. Meira enn ætti að geta gerst á svona stuttum tíma.

Ég er nokkurn veginn að fara gefast upp á þessum svefn.....það er það leiðinlegasta sem ég veit um. Kúr er gott enn svefn er leiðinlegur. Eða...bíddu....það er alveg ágætt að sofa enn stundum er maður pirraður á því. Ég nenn stundum hreinlega ekki að fara sofa! Ég var einmitt rétt áðan að ljúka 7 klst af Prison Break fyrstu séríu og mig langaði að fara klára hana en nei, svefninn ákvað að fara stjórnast með mig! "Heiða mín, tími til að fara sofa! Þú þarft svefn svo að þú verður stór og sterk!" Ég vil það kannski bara ekkert! Ég verð ekkert stærra en þetta og vil ekki vera Mrs. Fitness! Ég er að vakna á öllum tímum og fara sofa bara þegar að mér lystir.....það er ekkert skipulag. Það er svona þegar maður er hvorki í skóla né að vinna. Ég er manneskja sem lifi á skipulagi enn síðan fæ ég allt í einu að ráða......who in their right mind gives me that power!? WHO!?

Nú er málið að halda sér vakandi.......að reyna að halda sér vakandi. Efast um að ég geti það enn það er allt í lagi að lifa í voninni.
 

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég var að skrifa......þreytan er alltof mikið. Ég kveð því með lagi sem er einstaklega þýðingarmikið fyrir mig og skopi eins og ávallt:

 

Antony And The Johnsons- Man is The Baby
Yearning for more than a blue day
I enter your new life for me
Burning for the true day
I welcome your new life for me
Forgive me, Let live me
Set my spirit free
Losing, it comes in a cold wave
Of guilt and shame all over me
Child has arrived in the darkness
The hollow triumph of a tree
Forgive me, Let live me
Kiss my falling knee
Forgive me, Let live me
Bless my destiny
Forgive me, Let live me
Set my spirit free
Weakness sown, Overgrown
Man is the baby

Chao belles8)



 








» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 01:58:39 / Heida

"I wanna dance with you I see a world where people live and die with grace the karmic ocean dried up and leave no trace"

Góðan og blessaðan daginn fólk...hvað segir fólk svo gott? Ég er bara nokkuð skemmtileg í dag! Vaknaði kl. 9:47....takk fyrir, takk fyrir. Ég þarf að fara venja mig á þetta.

Eitt einkennilegt, við fórum ekkert að djamma þessa helgi. Við fórum út á föstudaginn enn við vorum bara að hanga á Celtic. Skrítið að hafa ekki farið á djammið.....vantar að dansa. Fórum reyndar á Hverfis...sem ég sór aldrei að fara á!! Ásamt Sólon en ég er búin að fara á báða þessa staði....mæli ekki með þeim!!! Allavena, fórum á hverfis og þar var enginn að dansa enn við hoppuðum út á dansgólf þegar að gott lag kom og tjúttuðum aðeins. Fólkið þarna inni kunni ekki að dansa.....það er mín kenning.

Ég hef einhvern megin ekkert að segja....horfði á firefly þar seinustu nótt..andskotið skemmtilegir þættir...mæli með þeim.

Ég og Kolbrún fórum á Black Dalhia og ég er enn þá svona creeped out by it. Ástæðan fyrir því að ég geti ekki sofnað!

Jæja....ég er búin að komast af því að maður hefur frá engu að segja ef maður er ekki í vinnu eða skóla.....me not like.

Arg.....foreldrar.....það er rosalegt form af mannkyninu! Móðir mín er búin að vera með the 3rd degree á mér. “hvað ertu að fara gera, hver er þetta, hverja ertu að fara hitta?”...blablabla! Ég þurfti að “have the talk” um daginn og útskýra fyrir henni að ég væri ekki lengur litla 8 ára saklausa stelpan hennar heldur tvítug mær sem vill eiga einkalíf. Hún er ekki alveg sátt þar sem ég er víst enn þá 6 ára litla aríu-syngjandi stelpan hennar. Hún er samt tilbúin að reyna.......áherslu á að REYNA!! Tóta er einmitt í sama vanda! Er þetta innbyggt inn í foreldra? Að barnið þitt sé barnið þitt og verði aldrei eldra enn 6 ára í þínum augum? Að barnið þitt sé enn saklaust og viti ekki af ljótu köllunum út í heimi? Er þessi ótrúlega þörf til að varðveita barnið í barninu þínum í okkur öllum? Viljum við ekki viðurkenna að saklausa barn okkar sé búið að spillast af heiminum og að það sé ekki lengur eins saklaust og það kom í heiminn? Það er ótrúlegt, hvað þessi þörf er mikil hjá foreldrum. Í þessum skrifuðum orðum þá átta ég mig á mömmu. Mér þykir ótrúlega vænt um hana, að vilja vernda mig svona.....enn...því miður þá verð ég að fullorðnast. Sorrý, lögmál náttúrunnar.

Talandi um börn.......hvernig getur maður verið svo viss um að vera hæfur til að eignast eitt stykkið? Heiðdís er búin að vera viss síðan að hún var 11 ára um að hún vilji barn á meðan að ég forðast það eins og heitan eld! Kannski einn daginn......eftir að allt hitt er komið. Ég er samt kaldhæðnislega búin að ákveða nöfnin á börnin...ef ég eignast einhver. Ég einmitt sagði ömmu nöfnin þegar að ég var 17 ára og hún spurði hvort að mig langaði svona mikið í börn......ég held að ég hef sjaldan svarað eins hneyksluð á ævinni! Þrátt fyrir að þú ákveður barnanöfnin þá þurfa börnin ekkert að koma.....er það? Móðir mín er einmitt komin með ömmu-tilfinninguna......það er ekki skemmtilegt. Sem skilnaðarbarn þá er ég svo hrædd um að eignast börn einmitt út af því. Ég vil ekki að börnin mín lendi í því sama og ég. Ég óska engum það. Er ekki málið að nota bara sæðisgjafa? Ég dáist að því hvað móðir mín fórnaði sér fyrir mig og systur mína. Hljómar soldið dramatískt enn eftir að hún og faðir minn skildu þá ákvað hún að ég og systir mín værum alltaf hennar forgangsröð. Hún ákvað að það þyrfti ekkert að standa í karlamálum, sem ég er soldið fegin með ..........enn hún mætti nú alveg ná í einn núna. Henni tókst að ala tvo sjálfstæða...þrjóska...léttgeggjaða einstaklinga. Ég er ekki viss um að ég gæti það. Að móta einstakling er ekkert smá verkefni! Það er alltaf kennt foreldrunum um ef krakkinn er klikk. Hvernig veit maður hvaða uppeldisaðferðir eru réttar? Er til foreldra hard-drive? Getur maður hoppað út í BT og keypt eitt stykki? Það ætti að vera til.......í framtíðinni verður allt á hard-drive og maður skellir því bara í hausinn á sér og þá er þetta allt komið inn. Þarft ekkert að læra, hefur kunnáttuna nú þegar!

Ég er búin að rausa núna soldið lengi um ja, um hluti sem er ekkert mikilvægir enn samt einhvern megin eru það....MJÖG!

Ég ætla að hætta bögga fólk og kveð því með skopi og lagi sem er frá Live enn það er hljómsveit sem ég get alltaf hlustað á:

Enn þá viss um að þú viljir krakka?

Live - Dance With You
sittin' on the beach
the island king of love
deep in fijian seas
deep in some blissful dream
where the goddess finally sleeps
in the lap of her lover
subdued in all her rage
and I am aglow with the taste
of the demons driven out
and happily replaced
with the presence of real love
the only one who saves

I wanna dance with you
I see a world where people live and die with grace
the karmic ocean dried up and leave no trace
I wanna dance with you
I see a sky full of the stars that change our minds
and lead us back to a world we would not face

the stillness in your eyes
convinces me that I
I don't know a thing
and I been around the world and I've
tasted all the wines
a half a billion times
came sickened to your shores
you show me what this life is for

I wanna dance with you
I see a world where people live and die with grace
the karmic ocean dried up and leave no trace
I wanna dance with you
I see a sky full of the stars that change our minds
and lead us back to a world we would not face

in this altered state
full of so much pain and rage
you know we got to find a way to let it go

sittin' on the beach
the island king of love
deep in fijian seas
deep in the heart of it all
where the goddess finally sleeps
after eons of war and lifetimes
she smilin' and free, nothin' left
but a cracking voice and a song, oh lord

I wanna dance with you
i see a world where people live and die with grace
the karmic ocean dried up and leave no trace
I wanna dance with you
i see a sky full of the stars that change our minds
and lead us back to a world we would not face
we would not face
we would not face
we would not face
we would not face
we would not face

Chao belles8)

 


















» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 11:53:26 / Heida

"Forget past indiscretions, And stolen possessions, You're high, In the cold light"

Takk fyrir....jólin  eru búin!! Það er ótrúlega skrítið......seinustu helgi var partýíað á föstudaginn sem var mjög úr karakter fyrir okkur stelpurnar enn við þurftum á því að halda. Jæja, það var dansað af sér skottið!! Þar sem við eru þekktar fyrir laugardagsdjammið þá gátum við ekki, ekki farið......réttara sagt þá var ég dregin á djammið með hinum stelpunum......það er greinilega auðvelt að plata mig. Þetta var samt gífurlegt fjör...ég sé alls ekki eftir þessari helgi.

Ég einmitt fór á Stranger then fiction.....ÞESSI MYND ER ÆÐI!!!! Allir eiga að fara á hana og líka little miss Sunshine! Þetta er æðislegar myndir, því....bara því. Farið á hana....NÚNA!!

Ég byrjaði að taka til um daginn og þá rakst ég á hugsanir mínar sem ég skrifaði fyrir löngu í ljóðarformi....ekki beint ljóð, meira hugsanir. Skrítið......það er bara....að lesa í gegnum þetta allt saman....sumt af þessu er að segja það sem ég er að ganga í gegnum núna....þetta er skrifað fyrir 2-4 árum síðan....og þá voru sko engin svona vandamál! Var ég að skrifa inn í framtíðina? Fékk ég eitthvað smá sannleikskorn þarna? Aldrei fæ ég að vita það.

Ég veit allavega að ég ætla að fara stunda magadans, sund og kraftjóga....ég verð! Ég ætla að koma mér í almennilegt form! Þá er ég að tala meira um það andlega en það líkamlega.......það er þó ekki verra ef það líkamlega verði aðeins sterkara.

Ég veit ekkert meira hvað á að segja........það er ekkert mikið að gerast...

Ég eldaði lasagnea í fyrradag......þótt ég segi sjálf frá.....þetta var æði! Þetta var algert lostæti! Ég verð að drattast til að elda meira....æfa mig meira....

Vá....ég held að ég hef aldrei skrifað um ekki neitt eins og núna.....ég vona að þið afsakið þetta...kveð þá með skopi og lagi sem er einstaklega ljúft að hlusta á:

 

 

Placebo - In The Cold Light Of Morning
In cold light of morning while, everyone is yawning,
You're high,
In the cold light of morning the party gets boring, you're high.
As your skin starts to scratch and wave yesterdays action goodbye..

Forget past indiscretions,
And stolen possessions,
You're high,
In the cold light.

In the cold light of morning, while everyone's yawning,
You're high.
In the cold light of morning ,
You're drunk sick from whoring and high,
Staring back from the mirrors,
A face that you don't recognise..
It's a loser, a sinner, a cock in a dildo's disguise,
In the cold light.

Tomorrow,
Tomorrow,
Tomorrow,
As your skin starts to scratch,
And wave yesterdays action goodbye.

Forget past indiscretions,
And stolen possessions,
You're high.
In the cold light of day..

Tomorrow's only a king,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
Whistle,
whistle,
Away ..

In the cold light of day.

Chao belles 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 03:42:58 / Heida

"And if you're ever around, in the backstreets or the alleys, of this town........"

Gleðilegt nýtt ár elsku dúllurnar mínar!!

Seinustu 27 klst eru búnar að vera ótrúlegt......það er skrítið hvernig hlutir fara úr því að vera frábærir í “what?” Það er alveg magnað, ég syrgi þó nokkuð nú því að manneskja sem að ég taldi vera vin yfirgaf mig. Ég er held ég enn þá í sjokki......get ekki beint tjáð mig.....

Jæja, skemmtilegri hlutir.....já, gamlárskveld var æði! Ég, Tóta, Guggulíus og Heiðdís fórum að djamma um nóttina og get ég ekki annað sagt enn það var æði! Ég fer sko aftur niður í bæ á næsta gamlárskveldi!! Ég er einmitt búin að setja nokkrar myndir inn http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=14580873&uid=7033875 Ég kom ekki heim fyrr en um 9 leytið....um morguninn!!

Annars er ekki mikið búið að gerast......bara búin að hanga...það var einmitt mjög skemmtilegt á nýársdag þá varð lil sys 16...TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ ELSKU DÚLLAN MÍN! ...og ég vaknið kl. 12 við hávaða úr stofunni en fólk var að taka til þar sem það var smá afmælispartý kl.3....great...á svona dögum þá er ég fegin að vera edrú. Síðan er ég allavena búin að rugla algerlega sólahringnum.

Mér finnst ég vera soldið tóm eins og er......

Allavena....árið 2006 hefur verið my busiest year ever! Auðvitað hefur það haft sína galla.....en kostirnir hafa verið svo miklu fleiri! Sumarið var það besta ever! Ég þakka 2006 fyrir góðar móttökur og vona að árið 2007 verði enn þá betra!

Kveð með skopi þrátt fyrir að vera ekki í skoplegu skapi og með lagi sem einhvern megin er viðeigandi á fáranlegan hátt.....:

 

Placebo - Pierrot The Clown

Leave me dreaming on the bed, see you right back here tomorrow,

for the next round

Keep this scene inside your head, as the bruises turn to yellow,

and the swelling goes down.

And if you're ever around, in the city or the suburbs, of this town,
Be sure to come around, I'll be wallowing in sorrow, wearing a frown, like pierrot the clown.

Saw you crashing 'round the bay, never seen you act so shallow, or look so brown.
Remembered all the things you'd say, how your promises went hollow, as you threw me to the ground.

And if you're ever around, in the backstreets or the alleys, of this town.
Be sure to come around, I'll be wallowing in pity, wearing a frown, like pierrot the clown.

When i dream, i dream if your lips,
when i dream, i dream of your kiss,
when i dream, i dream of your fists,
your fists,

your fists..

Leave me bleeding on the bed, see you right back here tomorrow, for the next round.

Keep this scene inside your head, as the bruises turn to yellow, and the swelling goes down..

And if you're ever around, in the city or the suburbs, of this town, be sure to come around, I'll be
wallowing in sorrow, wearing a frown, like pierrot the clown,
pierrot the clown,
pierrot the clown,
pierrot the clown,
pierrot the clown.

Chao belles 8)




























» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  87  Alls: 120850
Könnun
Jæja, hvernig leggst svo kreppan í ykkur?
Bara ógó vel þar sem ég finn ekki fyrir henni :)
1 atkvæði

Ég er að verða nett stressuð/aðar yfir þessu öllu saman...
0 atkvæði

Tökum bara upp evruna og þá verður allt í goody!
0 atkvæði

Mega stress hvort að allir bankar eru að fara á hausinn, ég vil ekki tapa þessum litla peninga sem ég á :s
0 atkvæði

Ég á margar milljónir og ég vil ekki að þær hverfa!! Ég ætla að flytja til UK!
0 atkvæði

Ríkistjórnin veit ekkert hvað hún á að gera....Bush er farinn að líta vel út núna.
0 atkvæði

Athuga möguleika okkar að fara inn í ESB, búa til almenninga skýrslu sem er send til almennings og farið síðan í þjóðaratkvæðisgreiðslu!
0 atkvæði

Fólk er að hlaupa úr vinnunni til að ná í peninga sína í bankanum....á maður þá ekki að vera smá skelkaður?
0 atkvæði

Ísland er að fara algerlega á hausinn og við getum ekkert gert.
1 atkvæði

HEIMSENDIR ER Á NÆSTA LEYTI!!!
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Dagsetning
20. mars 2010
Myndir
Málefni líðandi stundar