Heiða daggarlingur og Sunna pepsisti

Cherish this

27.06.2008 15:11:22 / Heida

Ég hjólaði í Nauthólsvíkina og fór í sund í morgun :)

26.06.2008 19:08:33
Tóta skrifaði   Ok, gefðu mér þá einhver almennileg rök fyrir að ganga ekki í esb ekki bara: ég hef lesið þetta og hitt..því það segir mér ekkert :P Og quotið þitt með ríkisstjórnina, hvaða ólíku leiðir eru að vinna saman að hverju? Skil ekki alveg hvað þú meinar. En vá...hvað með okkar eigin útvarpsþátt eða sjónvarpsþátt!! Þá væri fjör!

Það er sjálfstæðisflokkur og samfylkingin....þau eru mjög ólíkir karekterar! Þau eru með sitthvor markmiðinn og eru reyna sameina þau sem er ekkert að ganga. Ef þú lest stefnuskrá þeirra þá eru sum mál sem þau eru með alveg sitthvort sjónarhornið á.

ESB, ég er búin að segja mitt álit. Innganga Tyrkja ætti að segja nógu mikið.

Spánn er t.d. búinn að fara illa úr því að taka upp evruna og eru að hugsa um að taka aftur upp sinn gjaldmiðill. Við erum að gefa hluta af framkvæmdarvaldi okkar með að ganga í ESB. Ef Lissabon-sáttmálinn verðu samþykktur þá þýðir það að hvert land hefur eins mörg atkvæði eins og þegnar landsins þannig að við, Ísland, myndum ekki vega þungt í atkvæðisgreiðslum. Malta sem er mikil fiskiþjóð hefur lent illa í því þar sem Spánn og aðrir hafa þröngvað sér upp á fiskilögsögu þeirra. Þrátt fyrir að við erum eyja og eigum rétt skv. allavega gömlum lögum í ESB (veit ekki hvort að þeir eru búinn að endurnýja þau) þá ættum við að hafa rétt á okkar lögsögu en aðrar evrópuþjóðir eru þegar búnar að lýsa því yfir að þeir ætla fá að veiða í okkar lögsögu og stjórn ESB segir að það sé leyfilegt út af því að það er svo stórt meginland og blabla. Algert kjaftæði. Þeir segja líka að þeir ætli að gefa okkur styrki til að búa til aðra atvinnuvegi, þeir gera ekki ráð fyrir hvað það er mikið af litlum bæjum dreifð um allt land sem lifa á fiskinum. ESB-kallarnir gera sig ekki grein fyrir að það er hægara sagt en gert að gera það sem þeir segja. Annað, þegar ég var í Brussel í ESB ráðinu þá spurði ég hvað þeir myndu gera ef það væri eitthvað land sem gerði innrás á evrópuland og þetta land myndi verða eins og Þýskaland eftir seinni heimstyrjuöldina, hvað myndi ESB gera? Þýskaland varð fyrir algeri eyðilegging og þurfa að prenta gjaldmiðilinn út í massatali þannig að hann lækkaði stórkostlega. Myndu þeir prenta meira af gjaldmiðlinum, myndu þeir lána landinu meira, myndu þeir taka lán erlendis, hvað myndu þeir gera!? Kallinn sem ég spurði stóð á gati. Gat ekkert svarað þessu. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég vil ekki gangi í ESB. Þeir eru ekki búin að hugsa um alla gallana, bara kostina!

Það sem ég var að segja með að ég hef lesið mér til um ESB er að ég dæmi ekki út frá því sem ég heyri heldur leita ég mér staðreynda. Það er fáranlegt að dæma frá einungis það sem maður heyrir. Þú þarft að lesa þér til um til að geta dæmt um þetta mál.


Strip


Lag dagsins er “In the Crossfire” með Starsailor

Tóta skrifaði
Ég hef enga skoðun á ESB really, sagði bara að ef innganga lækkar verð þá why not, get voða lítið tjáð mig um þetta þar sem ég veit ekkert og nenni ekki að vita. Ekki mitt að ákveða enda myndi stjórnin ekki leyfa almenningi að kjósa um þetta mál. ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  37  Alls: 120921
Könnun
Jæja, hvernig leggst svo kreppan í ykkur?
Bara ógó vel þar sem ég finn ekki fyrir henni :)
1 atkvæði

Ég er að verða nett stressuð/aðar yfir þessu öllu saman...
0 atkvæði

Tökum bara upp evruna og þá verður allt í goody!
0 atkvæði

Mega stress hvort að allir bankar eru að fara á hausinn, ég vil ekki tapa þessum litla peninga sem ég á :s
0 atkvæði

Ég á margar milljónir og ég vil ekki að þær hverfa!! Ég ætla að flytja til UK!
0 atkvæði

Ríkistjórnin veit ekkert hvað hún á að gera....Bush er farinn að líta vel út núna.
0 atkvæði

Athuga möguleika okkar að fara inn í ESB, búa til almenninga skýrslu sem er send til almennings og farið síðan í þjóðaratkvæðisgreiðslu!
0 atkvæði

Fólk er að hlaupa úr vinnunni til að ná í peninga sína í bankanum....á maður þá ekki að vera smá skelkaður?
0 atkvæði

Ísland er að fara algerlega á hausinn og við getum ekkert gert.
1 atkvæði

HEIMSENDIR ER Á NÆSTA LEYTI!!!
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
Dagsetning
21. mars 2010
Myndir
Málefni líðandi stundar